Þessi ábending bendir notendum BYGG-kerfisins á það gagn og þann ávinning sem notendur þess hafa af því að nota BYGG-kerfið. Kannske hefur þú ekki hugsað út í þetta ?
Vissirðu t.d. að gæðakerfin kosta ekkert fyrir þá sem nota BYGG-kerfið ?
Hluti af BYGG-kerfinu eru þau lögbundnu gæðakerfi sem aðilar í byggingargeiranum þurfa að fá samþykki fyrir. Einnig er í BYGG-kerfinu gæðakerfi verktaka, sem verkkaupar gera oft kröfu um. Þetta er eitt af því sem við nefnum kerfi í kerfinu, en þau eru fjölmörg í BYGG-kerfinu. Notandi fær aðgang að öllum þessum kerfum þegar hann gerist áskrifandi að BYGG-kerfinu og greiðir ekkert aukalega fyrir þau.
Vissirðu einnig að þú færð tillögu að gæðakerfunum í BYGG-kerfinu ?
Með því að gerast áskrifandi að BYGG-kerfinu ert þú jafnframt kominn með tillögu að lögbundnum gæðakerfum. Þessi gæðakerfi getur þú notað eins og tillögurnar gera ráð fyrir, eða breytt þeim, ef þú telur það til bóata eða til að mæta sérþörfum þínum.
Hver er ávinningurinn af þessu ?
• Að auðvelt sé fyrir notendur að búa sér til gæðakerfi – tillaga að gæðakerfunum fylgir BYGG-kerfinu, sem búið er að fá samþykki fyrir hjá Mannvirkjastofnun.
• Með notkun gæðakerfanna eru gæði verka tryggð – markmið gæðakerfanna er að tryggja gæði verka og að uppfylla lögbundnar kröfur. Þetta er tryggt, annarsvegar með samþykki Mannvirkjastofnunar á gæðakerfunum og hins vegar með skráningu á framkvæmdinni, sem fram fer í gæðakerfunum.
• Auðvelt að vinna með gæðakerfin – gæðakerfin eru hluti af BYGG-kerfinu sem þýðir að þau eru netkerfi sem allstaðar má fara inn á til skoðunar, skráningar og úrvinnslu.
• Hagkvæmt að nota gæðakerfin – gæðakerfin eru tengd við valin gögn í BYGG-kerfinu, sem forðar tvískráningu og sparar vinnu og eykur öryggi.
• Auðvelt fyrir eftirlitsaðila að fylgjast með hönnun gæðakerfisins og skráningu í kerfiinu – eftirlitsaðili fær aðgang á netinu að gæðakerfi notanda í upphafi og í hverju verki, þegar notandi ákveður það.