Tölvukerfi Hannarrs
BYGG-kerfið
BYGG-kerfið er öflugt tölvukerfi á netinu fyrir þá sem standa í byggingarframkvæmdum. Með kerfinu er unnið frá hugmynd til fullbúins húss og gagnast kerfið húsbyggjendum, hönnuðum, hönnunarstjórum, ráðgjöfum, byggingastjórum, iðnmeisturum og verktökum.
Með BYGG-kerfinu eru gerðar kostnaðaráætlanir bygginga, tilboð í verk og boðin út verk. Kerfinu fylgja staðlaðar kostnaðaráætlanir og verklýsingar. Gæðakerfi eru í BYGG-kerfinu og öryggishandbækur, þar eru færðar dagbækur og fundargerðir, gerðar verkáætlanir og verkuppgjör og unnið annað sem þarf frá því að hugmynd fæðist og þar til byggingin er tilbúin. Öll vinnsla fer fram í kerfinu og öll gögn verksins eru vistuð þar.
BYGG-kerfið er í stöðugri þróun og fá notendur allar uppfærslur án endurgjalds á meðan þeir eru áskrifendur að því.
Hverjir nota BYGG-kerfið og hvernig?
Gæðakerfi BYGG-kerfisins
Viðhaldskerfið
Allir sem eiga fasteign, einir eða með öðrum, standa frammi fyrir því verkefni að halda eigninni við. Þetta þarf að gera skipulega þannig að kostnaður viðhaldsins sé sem minnstur til lengri tíma. Sumt þarf að gera oft og annað sjaldan. Þannig þarf t.d. að mála timburglugga utanhúss á 3 – 5 ára fresti á meðan málning á steinveggjum á að duga í 10 – 12 ár. Viðhaldskerfið er netkerfi eins og BYGG-kerfið.
Öll höfum við heyrt um vandamálin vegna myglusvepps, sem stöðugt er að koma upp í húsum vegna ónógs viðhalds. Orsökin er oftast raki sem orðið hefur vegna leka eða vegna ónógrar loftræstingar og sem má auðveldlega koma í veg fyrir með tímanlegu eftirliti og viðhaldi.
Í Viðhaldskerfinu er gerð langtíma viðhaldsáætlun sem sýnir á einfaldan hátt hvað þarf að gera fyrir eignina á hverju ári á meðan eignin er í notkun og þar er gerðar ástandsskoðanir og skammtíma viðhaldsáætlanir.
Viðhaldskerfið má fá sem viðbótarkerfi við BYGG-kerfið eða sem sjálfstætt kerfi.
Samtímis langtíma viðhaldsáætluninni verður til nákvæm árleg viðhaldsáætlun fyrir hvert ár sem eigendur geta notað til nákvæmra viðhaldsáætlana hverju sinni og til að bjóða út viðhaldsverkefnið og fylgja því eftir í kerfinu.
Notandi Viðhaldskerfisins sem á eða sér um fleiri eignir fær samandregið yfirlit yfir þær allar þar sem hann getur séð áætlað viðhald og viðhaldskostnað hvers þeirra og samtalstölu þeirra allra.
Með Viðhaldskerfinu fylgir app sem nota má til ástandsskoðunar og magntöku viðhaldsþátta. Í Viðhaldskerfinu er vistuð viðhaldssaga hverrar fasteignar sem skráð eru í kerfinu og vistaðar upplýsingar um efni, litanúmer, áætlaða endingu hvers viðhaldsþáttar o.s.frv.
ÁVINNINGURINN ?
- Einfalt að vinna með. Sjálfvirkt kerfi, þar sem forsendur viðkomandi fasteignar er aðlöguð viðhaldskerfinu í eitt skipti og gildir eftir það allan líftíma byggingarinnar.
- Mikill vinnusparnaður. Grunnviðhaldsáætlunin er þannig gerð í eitt skipti, sem endist síðan á meðan húsið er í notkun (t.d. 80 ár).
- Raunhæf viðhaldsáætlun. Áætlunin byggist á stöðluðum módelum sem uppfærðar eru til samræmis fasteign notandans. Með því er tryggt að engu sé gleymt.
- Réttar upphæðir viðhaldsáætlunar. Viðhaldskerfið sækir einingarverðin í byggingarverðskrá Hannarrs sem er uppfærð á þriggja mánaða fresti og með einni skipun er áætlunin uppfærð til viðhaldstímans.
- Rétt viðhald bygginga. Viðhaldskerfið gengur út frá stöðluðum líftíma byggingaþátta. Þannig er stuðlað að því að ekki fari fram ótímabært viðhald en jafnframt að viðhaldi sé sinnt tímanlega. Þetta getur komið í veg fyrir stórtjón. Notandi getur breytt þessum líftíma í sinni áætlun.
- Möguleikar notenda til eigin viðhaldsákvaraðana. Öllum áður nefndum viðhaldsþáttunum, magni, verði og líftíma getur notandinn breytt telji hann ástæðu til þess.
- Forðar notendum frá tjóni vegna viðhaldsmistaka. Föst regla á viðhaldstillögum og mati á viðhaldsþörf kemur í veg fyrir tjón t.d. af rakaskemmdum og sveppamyndun vegna skorts á eftirliti.
- Langtímaeftirlit með tíðni og kostnaði viðhalds. Vistun upplýsinga í Húsbókinni í viðhaldskerfinu tryggir notanda vitneskju um fyrri viðhaldsverk, hvað var gert og hvenær, hvaða efni var notað, hver vann verkið og hvernig verktakinn stóð sig o.s.frv.
- Sparnaður við verksamniga og framkvæmdir. Með tengingu viðhaldskerfisins við BYGG-kerfið fær notandinn aðgang að stöðluðum útboðs- og samningsgögnum vegna viðhaldsverka sinna og gögnum til að fylgja þeim eftir í viðhaldsframkvæmdunum.
- Góð yfirsýn yfir viðhald allra eigna sem viðkomandi er með í sinni umsjá. Með árlegu yfirliti yfir áætlaðan viðhaldskostnað hverrar eignar og eignanna í heild næstu 20 árin.
BYGG-appið
BYGG-appið er valmöguleiki fyrir þá sem þurfa eða vilja gera ástandsskoðanir vegna viðhalds húsa, og áætlanir um hvað viðhaldið muni kosta, eða reikna kostnað vegna nýframkvæmdar. Valið felst í því að geta gert ástandsskoðanir og kostnaðaráætlanir án þess að binda sig til lengri tíma með áskrift að BYGG-kerfinu eða að Viðhaldskerfinu. Þetta getur t.d. hentað þeim sem standa frammi fyrir viðhaldi á húsi sínu og vilja átta sig á hvað þurfi að gera og reikna út hvað það muni kosta. Sama á við um minni nýframkvæmdir. Einnig til að meta tilboð sem gerð hafa verið í viðhaldsverk eða nýframkvæmdir. BYGG-appið vinnur út frá sömu byggingarverðskrá og BYGG-kerfið og Viðhaldskerfið.
Þetta getur einnig verið fyrsta skrefið í að meta hvort BYGG-kerfið eða Viðhaldskerfið henti viðkomandi.
Með BYGG-appinu er gerðar ástandsskoðanir og viðhaldsáætlanir eldri húsa að utan og innan og áætlaður kostnaður við nýframkvæmdir. Með BYGG-appinu því eru prentaðar út ástandsskýrslur og kostnaðaráætlanir vegna viðhalds og nýframkvæmda sem eru gögn til að nota við ákvarðanir, útboð og samninga um viðhald og framkvæmdir.
Allt er unnið í símanum, þ.e. í BYGG-appinu og er aðgangur að appinu og greiðsla fyrir ákveðinn notkunartíma þess afgreiddur og greiddur við pöntun. Val er um einn, tvo eða þrjá mánuði og lokast sjálfkrafa á aðganginn að tímanum liðnum.
Fjórði möguleikinn er að fá aðgang að BYGG-kerfinu eða Viðhaldskerfinu með öllu því sem það býður upp á og velur notandinn þá þannig áskrift sem honum hentar, í pöntunarformi Hannarrs.